Fyrirtækjakaffi í nóvember

Það voru góðar umræður í síðasta fyrirtækjakaffi og nokkrir sem voru að mæta í fyrsta sinn. Við vonumst til að sjá sem flesta í næsta fyrirtækjakaffi sem verður haldið þriðjudaginn 8. nóvember næstkomandi kl. 9:00 í Betri stofunni í turninum í Firði.

Frábær vettvangur fyrir fólk í atvinnulífinu í Hafnarfirði til að koma saman, styrkja tengslanetið og ræða mál líðandi stundar. Notaleg og óformleg stemmning en umræðuefnið ræðst af því hverjir mæta og brydda upp á efni.

Fyrirtækjaeigendur og lykilstarfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði velkomnir. Framkvæmdastjóri markaðsstofunnar sem og hluti stjórnar verða á staðnum.