Tilnefning til hvatningarverðlauna

Hvatningarverðlaun markaðsstofunnar voru fyrst afhent árið 2016.

Þau eru veitt fyrirtæki, félagi eða einstakling sem hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum. Litið er á verðlaunin sem þakklætisvott fyrir óeigingjarnt starf við að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi.

Tilnefning fyrir 2020

Nú er komið að því að aðildarfyrirtæki markaðsstofunnar sem eru um 100 talsins fá að tilnefna til verðlaunanna fyrir árið 2020. Nauðsynlegt er að senda inn tilnefningu fyrir þann 1. febrúar næstkomandi með því að smella hér

Verðlaunaafhending

Tilkynnt verður um verðlaunahafa þann 18. febrúar en vegna sóttvarnaráðstafanna verður viðburðurinn með breyttu sniði í ár.

Fyrrum verðlaunahafar

Á síðasta ári var það VON Mathús sem fékk hvatningarverðlaunin en Fjarðarkaup, St. Jó lífsgæðasetur og Þorgeir Haraldsson fengu jafnframt viðurkenningu. Hægt er að skoða verðlaunahafa undanfarinna ára hér

Verðlaunahafar ársins 2019.

Verðlaunahafar ársins 2019.