Fyrsta fyrirtækjakaffi ársins

Það voru oft góðar og áhugaverðar umræður í fyrirtækjakaffinu okkar á síðasta ári. Við höldum því ótrauð áfram og hlökkum til að sjá sem flesta í næsta fyrirtækjakaffi sem verður haldið þriðjudaginn 10. janúar næstkomandi kl. 9:00 í Betri stofunni í turninum í Firði.

Frábær vettvangur fyrir fólk í atvinnulífinu í Hafnarfirði til að koma saman, styrkja tengslanetið og ræða mál líðandi stundar. Notaleg og óformleg stemmning en umræðuefnið ræðst af því hverjir mæta og brydda upp á efni.

Fyrirtækjaeigendur og lykilstarfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði velkomnir. Framkvæmdastjóri markaðsstofunnar sem og hluti stjórnar verða á staðnum.

Dagsetningar fram á vor

Við hittumst að jafnaði einu sinni í mánuði. Dagsetningarnar fram að vori eru eftirfarandi:

  • Miðvikudagurinn 8. febrúar

  • Miðvikudagurinn 8. mars

  • Þriðjudagurinn 2. maí

Mælum með að setja þessar dagsetningar í dagatalið.