Næsta fyrirtækjakaffi

Það var ákaflega vel mætt í síðasta fyrirtækjakaffi og góðar umræður sköpuðust. Við vonumst til að sjá sem flesta í næsta fyrirtækjakaffi sem verður haldið miðvikudaginn 5. október næstkomandi kl. 9:00 í Betri stofunni í turninum í Firði.

Frábær vettvangur fyrir fólk í atvinnulífinu í Hafnarfirði til að koma saman, styrkja tengslanetið og ræða mál líðandi stundar. Notaleg og óformleg stemmning en umræðuefnið ræðst af því hverjir mæta og brydda upp á efni.

Fyrirtækjaeigendur og lykilstarfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði velkomnir. Framkvæmdastjóri markaðsstofunnar sem og hluti stjórnar verða á staðnum.