Heimsókn til Íshesta

Íshestar býður starfsfólki aðildarfyrirtækja markaðsstofunnar í heimsókn fimmtudaginn 17. september næstkomandi kl. 9:00. Þar taka Magnús Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Íshesta og Erla Vignisdóttir sölu- og markaðsstjóri á móti okkur, kynna starfsemina og sýna aðstöðuna sem er að vissu leiti falin perla í upplandi Hafnarfjarðar.

Þetta er fyrsta fyrirtækjaheimsókn markaðsstofunnar í ár en við teljum þær vera góðan vettvang fyrir hafnfirsk fyrirtæki til að efla og styrkja tengslanetið. Við vonumst því til að sjá sem flesta.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Skráning
Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn fyrir þann 15. september með því að senda póst á msh@msh.is

Er fyrirtækið þitt ekki í markaðsstofunni? Þú getur skráð það hér