Hvatningarverðlaun MsH - Tilnefningar vegna ársins 2019

Markaðsstofa Hafnarfjarðar leitar eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna MsH 2020. 

Aðildarfyrirtæki Markaðsstofunnar geta tilnefnt fyrirtæki, félag eða einstakling sem þau telja að hafi lyft bæjaranda Hafnarfjarðar á árinu 2019 með starfsemi sinni og athöfnum og þannig gert Hafnarfjörð að betra samfélagi. 

Við hvetjum aðildarfélaga til að senda inn tilnefningu fyrir 1. febrúar næstkomandi hér.

Afhending Hvatningarverðlauna MsH 2020 fer fram í Hafnarborg þriðjudaginn 18. febrúar kl. 17 - 19. Viðburðurinn er öllum opinn.