Einyrkjakaffi í St. Jó.

Það eru margir vinnustaðir hér í Hafnarfirði sem telja ekki marga starfsmenn og sumir einungis einn.

Maður er manns gaman og því ætlar Markaðsstofan að halda áfram með kaffihúsahittinga fyrir einyrkja og fyrirtæki sem telja færri en fimm.

Einyrkjakaffi Markaðsstofu Hafnarfjarðar er öllum opið og er kjörin leið til að styrkja tengslanetið og hafa gaman saman.

Einyrkjakaffið verður haldið í Hjartanu í St. Jó. fimmtudaginn 30. janúar kl. 09:00 - 10:00.

Previous
Previous

Afhending Hvatningarverðlauna MsH 2020

Next
Next

Hvatningarverðlaun MsH - Tilnefningar vegna ársins 2019