Markaðsstofa Hafnarfjarðar leitar eftir öflugum starfsmanni í spennandi starf framkvæmdarstjóra stofunnar. Um er að ræða 50% starf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Helstu verkefni
Vinna við stefnumótun og eftirfylgni með henni
Stýring og þátttaka í markaðs- og samstarfsverkefnum sem miða að því að efla atvinnulíf í Hafnarfirði
Fjármögnun á starfsemi MsH
Yfirumsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum
Skipulagning viðburða
Gerð árlegrar rekstrar- og starfsáætlunar
Umsjón með daglegum rekstri, samskipti við aðildarfyrirtæki, hagsmunaaðila og Hafnarfjarðarbæ
Menntun og færni
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af kynningar og markaðsmálum
Reynsla af stefnumótun og verkefnastjórn sambærilegra verkefna kostur
Góð þekking á íslensku atvinnulífi og rekstrarumhverfi fyrirtækja kostur
Þekking og reynsla af stjórnsýslu á sveitarstjórnarstigi kostur
Reynsla af sambærilegum rekstri kostur
Góð þekking og reynsla af stafrænni markaðssetningu og miðlun
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Skapandi og lausnamiðuð nálgun
Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
Geta til að vinna undir álagi og að mörgum verkefnum. á sama tíma
Góð kunnátta í íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
Umsóknarfrestur til 2. febrúar.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum.
Vinsamlegast sendið umsókn á stjorn@msh.is