Einyrkjakaffi MsH

Það eru margir vinnustaðir í Hafnarfirði sem telja ekki marga starfsmenn og sumir einungis einn. Maður er manns gaman og því ætlar Markaðsstofa Hafnarfjarðar að halda áfram með kaffihúsahittinga fyrir einyrkja og fyrirtæki sem telja færri en fimm.

Næsta Einyrkjakaffi MsH verður í Lífsgæðasetri St. Jó þriðjudaginn 5. nóvember. Gengið inn frá Hringbraut.

Einyrkjakaffi er opið öllum og er kjörin leið til að styrkja tengslanetið og hafa gaman saman. Við hvetjum aðildarfélaga sem og aðra einyrkja í Hafnarfirði til að nýta tækifærið og hitta aðra á svipuðu róli.