Aðalfundur Markaðsstofu Hafnarfjarðar

Aðalfundur markaðsstofunnar verður haldinn þann 10. júní næstkomandi kl. 17:30 á Fjörukránni í salnum á hótelinu.

Dagskrá

•       Kosning fundarstjóra og fundarritara

•       Skýrsla stjórnar 2019-2020

•       Ársreikningur 2019

•       Starfs- og fjárhagsáætlun 2020

•       Ákvörðun árgjalds

•       Kosning stjórnar

•       Kosning skoðunarmanna reikninga

•       Önnur mál

Kosning stjórnar og skoðunarmanna

Í stjórn markaðsstofunnar sitja fjórir aðilar frá fyrirtækjum í bænum og þrír fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar, auk tveggja varamanna. Á aðalfundi er kosið um aðila frá fyrirtækjum til tveggja ára. Að þessu sinni verður kosið um tvö stjórnarsæti.  Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram vinsamlegast látið vita með því að senda póst á msh@msh.is.

Á fundinum verða einnig kosnir tveir skoðunarmenn reikninga, áhugasamir eru einnig beðnir um að láta vita með því að senda póst á msh@msh.is.

Kjörgengi og kosningarétt til stjórnarkjörs hafa þeir sem greitt hafa árgjald 2019, skv. 1. mgr. samþykkta/skipulagsskrá. Eitt atkvæði fylgir hverju greiddu árgjaldi.

Ársreikningur og fundargerðir

Ársreikningur og fundargerðir stjórnar frá árinu 2019 liggja frammi á skrifstofu markaðsstofunnar að Linnetstíg 3 fram að aðalfundi og er öllum velkomið að skoða þær. Skrifstofan er opin á þriðjudögum og fimmtudögum á milli kl. 10 og 14.